Fréttir ÍBA

Dagskrá 70 ára afmælis ÍBA

Þann 9. maí næstkomandi mun Íþróttabandalag Akureyrar fagna 70 ára afmæli sínu. Afmælisfögnuðurinn verður með veglegasta móti og taka öll aðildarfélög bandalagsins þátt í fögnuðinum. Veislan fer fram í Íþróttahöll Akureyrar, Sundlaug Akureyrar, íþróttahúsinu við Laugargötu, Sundlaugargarðinum og útisvæðunum allt um kring. Vegleg dagskrá verður í boði fyrir gesti og frítt inn á öll svæði. Gestum gefst m.a. kostur á að sjá og prufa hinar ýmsu íþróttagreinar aðildarfélaga ÍBA. Sjáumst hress þann 9. maí !

70 ára afmæli Íþróttabandalags Akureyrar

Þann 9. maí næstkomandi mun Íþróttabandalag Akureyrar fagna 70 ára afmæli sínu. Afmælisfögnuðurinn verður með veglegasta móti og taka öll aðildarfélög bandalagsins þátt í fögnuðinum. Veislan fer fram í Íþróttahöll Akureyrar, Sundlaug Akureyrar, íþróttahúsinu við Laugargötu, Sundlaugargarðinum og útisvæðunum allt um kring. Vegleg dagskrá verður í boði fyrir gesti og frítt inn á öll svæði. Gestum gefst m.a. kostur á að sjá og prufa hinar ýmsu íþróttagreinar aðildarfélaga ÍBA. Sjáumst hress þann 9. maí !

Haraldur Sigurðsson heiðursfélagi ÍBA

Íþróttabandalag Akureyrar gerði Harald Sigurðsson að heiðursfélaga en hann varð níræður í gær við hátíðlega athöfn í Hofi.

Íþróttamaður Akureyrar 2014 er Hafdís Sigurðardóttir

Frjálsíþróttakonan Hafdís Sigurðardóttir úr UFA er íþróttamaður Akureyrar árið 2014. Viktor Samúelsson úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar varð annar og Einar Kristinn Kristgeirsson úr Skíðafélagi Akureyrar þriðji.

Íþróttamaður Akureyrar 2014

val á íþróttamanni Akureyrar 2014 verður 21. janúar 2015, í Menningarhúsinu Hofi. Húsið opnar kl. 17.00 og hefst hátíðin kl. 17.15. Allir velkomnir

Gleðileg jól og farsælt nýtt ár

ÍBA óskar aðildarfélögum og öllum bæjarbúum, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, þökkum liðin ár.

70 ára afmæli ÍBA

Íþróttabandalag Akureyrar hélt upp á 70 ára afmæli sitt, 20. desember 2014

Íþróttabandalag Akureyrar 70 ára

Þann 20. desember verður ÍBA 70 ára og verðum við með opið hús í Glerárgötu 26, milli kl. 10-12. Allir velkomnir í kaffi og konfekt.

YFIRÞJÁLFARAR HITTAST

Íþróttabandalag Akureyrar, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og Akureyrarbær boða alla yfirþjálfara innan aðildarfélaga ÍBA til fundar í kaffiteríunni í Íþróttahöllinni þriðjudaginn 9. september kl. 17.00-19.00. Til gangur fundarins er margþættur: Koma á fót þjálfaranefnd innan aðildarfélaga ÍBA. Styðja við yfirþjálfara og virkja yfirþjálfara í að virkja aðra/almenna þjálfara innan þeirra félaga. Draga fram sýn þjálfara á íþróttir á Akureyri í þeirri viðleitni að gera gott starf betra. Forvarnarfræðsla í víðu samhengi. Verksvið yfirþjálfara. Markmið með fundunum eru: Að gera góða þjálfara ennþá betri. Að byggja tengslanet þvert á íþróttagreinar og íþróttafélög. Að auka samstarf milli þjálfara, þvert á íþróttagreinar og íþróttafélög. Stefnumótun og markmiðasetning fyrir heildina. Betri íþróttir til framtíðar á Akureyri. Öllum yfirþjálfurum er boðið að taka þátt í fundinum. Ef ekki er starfandi yfirþjálfari þá má þjálfari eða stjórnarmaður sækja fundinn í hans stað.

Hjólað í vinnuna við Hof 16. maí

Föstudaginn 16. maí verður kaffitjald á Akureyri fyrir framan menningarhúsið Hof kl. 16:30-18:00. Í boði verða veitingar frá Ölgerðinni og Kaffitári. Aðilar frá hjólahópnum á Bjargi verða á staðnum og bjóða uppá leiðbeiningar um meðferð og stillingu hjóla, ásamt minniháttar lagfæringum. Hjólafjör, Hjólahópurinn Bjargi