Fréttir ÍBA

Baldvin Þór og Sandra María eru Íþróttakarl og -kona Akureyrar 2025

Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon frá UFA er íþróttakarl Akureyrar 2025 og knattspyrnukonan Sandra María Jessen frá Þór/KA er íþróttakona Akureyrar 2025.

Linkur á beint streymi frá Íþróttahátíð Akureyrar í Hofi 29. janúar

Lífshlaupið 2026

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi.

Íþróttahátíð Akureyrar

Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær bjóða bæjarbúum til athafnar í Hofi fimmtudaginn 29. janúar kl. 17.30 þar sem kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar fyrir árið 2025 verður meðal annars lýst. Verður þetta í 47. sinn sem Íþróttamaður Akureyrar er heiðraður og í tíunda sinn þar sem bæði íþróttakona- og íþróttakarl Akureyrar eru valin og heiðruð.