Afrekssjóður Akureyrarbjæjar - umsóknir vegna 2026

Afrekssjóður Akureyrarbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna sjóðshlúthlutunar afreksíþróttaefna og landsliðskeppnisferða fyrir árið 2026. Markmið sjóðsins er að styrkja akureyrsk afreksíþróttaefni, á sextánda aldursári eða eldri (f. 2010 og fyrr), sem skara framúr í sinni íþróttagrein innan aðildarfélaga ÍBA og talin eru með markvissri þjálfun geta skipað sér á bekk með þeim bestu á landsvísu. Athugið að afreksefni þurfa að æfa og keppa með aðildarfélögum ÍBA og eiga lögheimili á Akureyri. 

Ennfremur er afreksíþróttafólk og afreksefni styrkt vegna ferðakostnaðar landsliðskeppnisferða erlendis á vegum sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), að hámarki tvær ferðir á ári.

Reglugerð afrekssjóðs Akureyrarbæjar má finna hér:

Reglugerð Afrekssjóðs Akureyrarbæjar

Rafrænir umsóknarferlar eru inná heimasíðu ÍBA:

Íþróttabandalag Akureyrar

Umsóknarfrestur afreksefna er til og með 1. desember en vegna ferðastyrkja landsliðskeppnisferða til 31. desember 2026.