Stjórnarfundur 13. maí 2024

13.05.2024 16:30

Stjórn:                                                      Starfsmaður:
Jóna Jónsdóttir, formaður                    Helga Björg Ingvadóttir, framkvæmdastjóri

Birna Baldursdóttir, varaformaður                   
Jón Steindór Árnason, gjaldkeri

Alfreð Birgisson, meðstjórnandi

Sigrún Árnadóttir, ritari

María Aldís Sverrisdóttir, varamaður, 

Ásgeir Blöndal, varamaður 

 

  1. Fundur settur

  2. Fundargerð síðasta fundar - Fundargerð samþykkt

  3. Innsend erindi:Fræðslu- og lýðheilsuráðsbókanir:

Til upplýsinga

Umræður um aðstöðumál íþróttafélaganna/íþróttagreina. Ákveðið að óska eftir innleggi um framtíðarsýn/uppbyggingu á íþróttamannvirkjum frá Heimi, formanni fræðslu- og lýðheilsuráðs og Ellerti forstöðumanni íþróttamála hjá Akureyrarbæ.

  1. Málefni stjórnar: 

 

  • Stjórnarskipting - skipting verkefna milli stjórnarmanna

 

        Lagt til að Birna Baldursdóttir sitji áfram sem varaformaður, Jón Steindór Árnason áfram sem gjaldkeri og Sigrún Árnadóttir áfram sem ritari. Tillaga samþykkt einróma.

  • Ársþing ÍBA - samantekt

        Þingið gekk vel en hins vegar var mæting dræm, aðeins þingfulltrúar frá 11 af 20 félögum.  Mikilvægt fyrir næsta þing að tryggja betri mætingu.

  • Aðstöðumál Karatefélagsins

         Búið að að tryggja aðstöðu í íþróttahöllinni fram á vor 2025.

  • 80 ára afmælishátíð ÍBA 

        ÍBA á 80 ára afmæli 20. desember.Umræður um fyrirkomulag, einn stór viðburður eða fleiri litlir. Formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri munu taka málið áfram og ráðfæra sig við utankomandi aðila.

  • Staða á ársskýrslum og ársreikningum félaga

          14 af 20 búin að skila ársskýrslu.

          9 af 20 búin að skila ársreikningi.

          4 af 20 búin að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ.

  • Næsti formannafundur

         Skv. lögum skulu haldnir tveir formannafundir ár hvert. Ákveðið að stefna að næsta formannafundi í byrjun september. Umræður um að fá félögin sjálf til að koma með innlegg um         framtíðarsýn félaganna.

  • Aðalfundur Þórs

         Framkvæmdastjóri og formaður mættu á aðalfund Þórs fyrir hönd ÍBA. Á fundinum voru lagðar til 4 tillögur um lagabreytingar en tillögurnar voru ekki sendar með fundarboði aðalfundar. Gerð var athugasemd við það á fundinum og ekki voru allir sammála um túlkun á lögum Þórs varðandi málið. Fundurinn ákvað að taka tillögurnar til atkvæðagreiðslu og samþykkti þær. Meðal annars sneri lagabreyting að kjöri stjórnar og því álitamál hvort stjórn sé löglega kjörin. Formaður mun senda erindi á formann Þórs og starfsmann ÍSÍ og kanna stöðuna á þessu máli.

  • Íþróttir fyrir ungmenni með sérþarfir - Allir með

          Næstkomandi miðvikudag verður fundur með Garðari Stefáni Nikulás Sigurgeirssyni, Jónasi Leifi Sigursteinssyni og Ólafi Péturssyni sem allir hafa unnið með börnum og ungmennum    með sérþarfir, auk þess að vera með þekkingu og bakgrunn úr heimi íþróttanna. Þeir sem eru boðaðir á fundinn eru fulltrúar frá Þór og KA, starfsmaður velferðarsviðs Akureyrarbæjar, verkefnastjóri félagslegrar liðveislu hjá Akureyrarbæ, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ, forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ og framkvæmdastjóri ÍBA. 

         Markmið með fundinum er að horfa til þess hvernig hægt verður að ýta úr vör starfsemi fyrir þennan hóp frá og með næsta hausti. 

  • Staðan á svæðisskrifstofunum

          Formaður er tengiliður ÍBA við þetta verkefni en ekkert frekar hefur heyrst af stöðu ráðninga.

  • Fyrirhuguð heimsókn ÍBR til Akureyrar

          Heimsókn er fyrirhuguð 5. október. 

  1. Önnur mál:

        Engin önnur mál.

  1. Tilhögun næsta fundar

       Næsti fundur er áætlaður 10. júní kl. 16:30 

 

Fundarslit kl. 18:25