Stjórnarfundur 10. júní 2024

10.06.2024 16:30

Stjórn:                                                      Starfsmaður:
Jóna Jónsdóttir, formaður                    Helga Björg Ingvadóttir, framkvæmdastjóri

Birna Baldursdóttir, varaformaður                   

Jón Steindór Árnason, gjaldkeri

Alfreð Birgisson, meðstjórnandi

Sigrún Árnadóttir, ritari

María Aldís Sverrisdóttir, varamaður, - Fjarverandi

Ásgeir Blöndal, varamaður - Fjarverandi

Gestir undir lið 4.a:

Heimir Örn Árnason, formaður Fræðslu- og lýðheilsuráðs

Ellert Örn Erlingsson, forstöðumaður íþróttamála

 

  1. Fundur settur

  2. Fundargerð síðasta fundar - Samþykkt frestað til næsta fundar

  3. Innsend erindi:

    1. Fræðslu- og lýðheilsuráðsbókanir:
      Fræðslu- og lýðheilsuráð - 52. fundur - 13.05.2024 | Akureyrarbær (akureyri.is)

                 Engin erindi tengt ÍBA

  1. Fræðslu- og lýðheilsuráð - 53. fundur - 27.05.2024 | Akureyrarbær (akureyri.is)

       Umfjöllun um lýðheilsustefnu. ÍBA mun ítreka vilja bandalagsins til að vera með í mótun lýðheilsustefnu. Ákveðið var að óska eftir kynningu Héðni Svarfdal, verkefnastjóra lýðheilsumála.

       Drög að samskipta- og samstarfssamninga Akureyrarbæjar og ÍBA voru lögð fyrir. Formaður og framkvæmdastjóri mun fylgja þessu eftir.

Til upplýsinga

  1. Málefni stjórnar: 

    1. Kynning frá Heimi og Ellerti varðandi stöðu uppbyggingamál hjá aðildarfélögunum ÍBA

               Heimir og Ellert fóru yfir aðstöðumál aðildarfélaga ÍBA og þá uppbyggingu sem er framundan á kjörtímabilinu. 

  1. Tímaúthlutunarreglur ÍBA og Akureyrarbæjar

         Unnið er að tímaúthlutnarreglum ÍBA og Akureyrarbæjar en engar almennar reglur hafa verið til. Drög voru kynnt fyrir stjórn, en stjórn mun fá reglurnar sendar og fær viku til að skila inn athugasemdum. Ákveðið var  að senda drög að tímaúthlutunarreglum ÍBA og Akureyrarbæjar til þeirra félaga innan ÍBA sem reglurnar taka til.

  1. Íþróttavika Evrópu 23.-30. september 2024 (#BeActive)

        Vilji er til að fá fleiri félög innan ÍBA til að taka þátt í #BeActive í ár. Ákveðið að óska eftir hugmyndum frá aðilarfélögum síðsumars og vinna dagskrá í samvinnu við þau. Hægt er að fá styrk í verkefnið en sækja þarf um fyrir 10. ágúst og leggja samhliða inn dagskrá.

  1. 80 ára afmælishátíð ÍBA - staðan

       Framkvæmdastjóri, formaður og varaformaður  funduðu með Viðburðarstofu Norðurlands. Komin er fram hugmynd um að halda fjölskylduhátíð í Boganum í lok nóvember, byrjun desember. Dagsetning er í skoðun.

  1. Svæðisskrifstofur - staðan

       Búið er að ráða tvo starfsmenn fyrir svæðið. Enn óákveðið hvar störfin verða staðsett.

  1. Staða á starfsskýrsluskilum til ÍSÍ og UMFÍ, skil á ársskýrslum og ársreikningum til ÍBA - lottó úthlutun til þeirra sem hafa ekki skilað

     Fimm félög sem enn hafa engu skilað. Önnur félög hafa skilað ársreikningum en einhver vöntun er á starfsskýrslum.

      Lottóúthlutun verður haldið eftir þar til félög hafa skilað inn gögnum. Framkvæmdastjóri mun ýta við félögunum og gefa þeim lokafrest.

  1. Íþróttir fyrir ungmenni með sérþarfir - Allir með - staðan eftir fundinn 15.maí

     KA og Þór eru að vinna þetta verkefni áfram með velferðarsviði, þ.e. skipuleggja sunnudags æfingar í vetur fyrir börn með sérþarfir.

  1. Fundur með SA 5. júní

      Formaður og varaformaður fóru á fund SA þar sem formaður SA kynnti framtíðarsýn félagsins og uppbyggingaráform.

  1. Önnur mál:

    1. Vorfundur UMFÍ í Reykjavík laugardaginn 8. júní. 

      Formaður ÍBA sótti fundinn. Þar voru m.a. kynntir ýmsir sjóðir á vegum UMFÍ. 

  1. Tilhögun næsta fundar

      Næsti fundur áætlaður 12. ágúst.

  1. Fundarslit um 18:15