Unglingalandsmót UMFÍ 2023

Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki 2023 

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er ár hvert um verslunarmannahelgina, að þessu sinni á Sauðárkróki.

Boðið er upp á 19 íþróttagreinar og fjölda annarra viðburða og greina sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í. Að auki verða tónleikar öll kvöldin og nóg að gera.

Á meðal greinanna eru hlaupaskotfimi (biathlon), bogfimi, frisbígolf, frjálsar íþróttir, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir, hjólreiðar, júdó, knattspyrna, kökuskreytingar, körfubolti, motocross, pílukast, skák, stafsetning, sund og upplestur.

Auk þess verður kynning á bandý, sandkastalagerð, víðavangshlaup, barnaskemmtun, glíma, leikjagarður og margt fleira. Þar á meðal eru vinnubúðir með Andrew Henderson, margföldum heimsmeistara í Freestyle Football. Hann hefur kennt fótboltastjörnum eins og Ronaldo, Messi, Neymar og mörgum fleirum töfrabrögð með boltann.

Þátttakendur  geta skráð sig í eins margar greinar og viðkomandi vill taka þátt í.

Tónleikar 

Tónleikar verða öll kvöldin á meðan Unglingalandsmóti UMFÍ stendur. Á meðal þeirra sem koma fram eru: Emmsjé Gauti, Guðrún Árný, Magni Ásgeirsson, Herra Hnetusmjör, DJ Heisi, Danshljómsveit Dósa, Arnór og Baldur og fleiri. Aðgangur að tónleikum og öllu öðru er innifalið í miðaverðinu.

Miðaverð og tjaldsvæði 

Aðeins kostar 8.900 krónur fyrir hvern þátttakanda á Unglingalandsmóti UMFÍ. Inni í miðaverðinu er aðgangur að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna alla helgina (fyrir utan rafmagn), aðgangur á alla viðburði, tónleika, frítt í sund í Skagafirði og margt fleira. 

Sambandsaðilar UMFÍ styrkja sumir þátttakendur á sínu svæði að hluta eða öllu leyti. Aðrir veita þátttakendur á sínu svæði ýmsan varning til viðbótar, svo sem peysur eða boli merkta sambandsaðilanum. ÍBA styrkir iðkendur innan aðildarfélaga ÍBA um helming af þátttökugjaldinu svo þátttökugjaldið er þá einungis 4.450 kr. á keppanda. Því er mikilvægt að velja rétt íþróttahérað við skráningu til að fá afsláttinn.

Opið er fyrir skráningu núna! 

Kynningarmyndband: https://youtu.be/0MT3Is5_uyc

Allar upplýsingar um mótið á www.umfi.is 

Unglingalandsmót UMFÍ er líka á Facebook