Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina
Unglingalandsmót UMFÍ er haldið ár hvert um verslunarmannahelgina, að þessu sinni á Sauðárkróki 30. júlí - 2. ágúst 2025. Mótið er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára taka þátt í hinum ýmsu íþróttagreinum. Samhliða keppninni er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki, skemmtun og lifandi stemningu fyrir fjölskylduna alla helgina.
Þátttakendur þurfa hvorki að vera skráðir í íþróttafélag né æfa íþróttir til að geta tekið þátt. Þátttakendur þurfa heldur ekki að vera með lið til að geta keppt í ýmsum greinum, svo sem körfubolta eða fótbolta. Starfsmenn og sjálfboðaliðar UMFÍ sjá um að búa til lið fyrir þátttakendur sem ekki eru í liði eða koma viðkomandi í lið.
Bæði foreldrar og yngri og eldri systkini sem ekki keppa í greinum geta notið á Unglingalandsmótinu alla helgina því samhliða keppninni er boðið upp á fjölbreytta afþreytingu, leiki og skemmtun alla daga mótsins.
Mótsgjald og skráning
Mótsgjaldið er 11.900 krónur fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum mótsins, aðgang að viðburðum og frítt í sund í öllum sundlaugum Skagafjarðar alla mótshelgina. Yngri systkini greiða ekkert þátttökugjald en geta engu að síður tekið þátt í fjölbreyttri afþreyingu og skemmtilegum viðburðum sem í boði eru frá morgni til kvölds. Skráning er í fullum gangi og lokar á miðnætti 26. júlí.
Á Unglingalandsmóti UMFÍ keppa þátttakendur undir nöfnum íþróttahéraða landsins og því keppa skráðir þátttakendur ÍBA undir merkjum þess. Fjölmörg íþróttahéruð styrkja þátttakendur af sínu svæði að hluta eða öllu leyti . ÍBA styrkir þátttakendur ÍBA um helming af þátttökugjaldinu svo þátttökugjaldið er þá einungis 5.950 kr. á keppanda. Því er mikilvægt að velja rétt íþróttahérað við skráningu.
Við skráningu, sem fram fer í gegnum Abler, er netfang þátttakenda nýtt til að senda út mikilvægar upplýsingar um mótið og dagskrá þess. Með skráningu samþykkja þátttakendur einnig að myndir og myndbönd sem tekin eru á mótinu megi nýta í kynningar- og útgáfuefni UMFÍ. Jafnframt er veitt heimild til að birta nöfn þátttakenda á heimasíðu UMFÍ í tengslum við ráslista, úrslit og aðrar upplýsingar sem tengjast framkvæmd mótsins.
Nánari upplýsingar um mótið, dagskrá og skráningu (leiðbeiningar) má finna á heimasíðu UMFÍ