Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Akureyri

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina 2015. Þetta verður í fyrsta skipti sem Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið þar. Mótið hefst fimmtudaginn 30.júlí með keppni í golfi en aðrar keppnisgreinar hefjast síðar. Mótsslit eru um miðnætti á sunnudagskvöldi.
Búist er við fjölmennu móti á Akureyri að þessu sinni enda eru fleiri keppnisgreinar en nokkru sinni áður. Á Akureyri er gríðarlega góð keppnisaðstaða til staðar fyrir allar keppnisgreinar þannig að ekkert mun skorta í þeim efnum.