Á morgun, föstudaginn 4. september, er Treyjudagurinn haldinn víða um heim til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Treyjudagurinn er haldinn á þessum degi á hverju ári en í ár tekur Ísland þátt í fyrsta sinn.
Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhalds treyjunni sinni og sýna þessu mikilvæga málefni stuðning og samstöðu.
Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að deginum en félagið var stofnað árið 1991 til að styðja við bakið á krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra með ýmsum hætti.
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu félagsins.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að taka þátt í þessum degi, styrkja félagið og klæðast uppáhalds treyjunni sinni en það skiptir í raun ekki hvaða íþrótt hún tengist, má vera hvaða treyja sem er.