Tilnefndu þinn sjálfboðaliða

Árið 1985 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að 5. desember yrði helgaður sjálfboðaliðum. Síðan þá hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur víða um heim ár hvert.

Íþróttahreyfingin á Íslandi tekur að sjálfsögðu þátt og halda ÍSÍ og UMFÍ nú upp á daginn þriðja árið í röð. Íþróttahéruð og sérsambönd eru hvött til að tilnefna sjálfboðaliða úr sínum röðum og lyfta þannig upp því fólki sem sinnir ómetanlegu starfi innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar. Svæðisstöðvar íþróttahéraða styðja við verkefnið og kynningu þess á hverju svæði.

Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægu starfi sjálfboðaliða og þakka þeim fyrir framlag sitt til íþróttahreyfingarinnar. Tilgangurinn er ekki að meta hver leggur mest af mörkum. Hann er að beina kastljósinu að sjálfboðaliðum og minna á að framlag hvers og eins skiptir máli.

Svona fer tilnefningin fram

Hægt er að tilnefna sjálfboðaliða, ásamt rökstuðningi, til og með 27. nóvember. Dregið verður úr tilnefningum fyrir hvert landsvæði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 1. desember. Niðurstöðurnar verða kynntar í kringum Dag sjálfboðaliðans á miðlum íþróttahreyfingarinnar.

Sá sjálfboðaliði sem dreginn verður út á hverju landsvæði fær lítinn þakklætisvott fyrir framlag sitt og verður fjallað um hann á miðlum UMFÍ og ÍSÍ. Hver einstaklingur fer aðeins einu sinni í pottinn, óháð því hversu margar tilnefningar hann fær.

Smelltu hér til þess að tilnefna sjálfboðaliða.

Takk sjálfboðaliðar!