Taktu stjórnina - forvarnarmyndbönd gegn nikótíni

UMFÍ, Fræðsla & forvarnir og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hafa gefið út fjögur stutt forvarnamyndbönd um skaðsemi nikótíns undir yfirskriftinni Taktu stjórnina! Myndböndin byggjast á fræðsluefni dr. Láru G. Sigurðardóttur læknis. 

Forvarnardagurinn var haldinn 1. október síðastliðinn. Hann minnir okkur á að forvarnir skipta máli og að það er hægt að hafa áhrif.

Samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis, sem komu út í september 2026, nota 12,3% framhaldsskólanema á landinu nikótínpúða daglega. Það er um einn af hverjum átta. 

Í myndböndunum er fjallað á einfaldan og myndrænan hátt um hvernig nikótínfíkn myndast, áhrif nikótíns á heilann, svefn, líkamann og tannhold, og ávinninginn af því að sleppa nikótíni.

Myndböndin eru stutt og með texta og njóta sín því bæði með og án hljóðs. Þau eru til í lóðréttu og láréttu sniði og henta vel:

  • á skjám í anddyri eða við afgreiðslu íþróttahúsa og sundlauga.
  • á viðburðum, mótum og fundum íþrótta- og ungmennafélaga.
  • á samfélagsmiðlum félaga.
  • sem kveikja að samtali á æfingum eða í kennslustundum.

Á heimasíðu UMFÍ eru einnig umræðuspurningar með hverju myndbandi, sem þjálfarar og kennarar geta notað.

Sækja myndböndin: https://myndir.umfi.is/s/o/xucqhfr8MJ6sbWfQ

Umræðuspurningar og nánari upplýsingar: https://www.umfi.is/verkefni/reyklaust-tobak/

Myndböndin má einnig sækja hvert fyrir sig hér: https://myndir.umfi.is/s/o/xucqhfr8MJ6sbWfQ

 
Viltu hætta?

Á heilsuvera.is finnur þú upplýsingar og stuðning við að hætta að nota nikótín, og þar getur þú haft samband við heilsugæsluna þína.