Syndum - Landsátak í sundi 1.-30. nóvember 2023

Syndum – landsátak í sundi stendur yfir frá 1.-30. nóvember 2023. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir átakinu sem verður sett með formlegum hætti miðvikudaginn 1. nóvember kl. 09:30 í Sundlaug Kópavogs en fer fram um allt land.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og er sund meðal annars frábær leið til þess. Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda hringi í kringum Ísland. Í fyrra náðist að leggja að baki 10.2 hringi í kringum landið.                

Syndum - Landsátak í sundi, er viðburður innan Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. ÍBA stóð einmitt fyrir ýmsum viðburðum sem voru partur af Íþróttaviku Evrópu sem fóru fram í lok september við góðar undirtektir.

Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Þátttakendur geta skráð sig inn á síðunni www.syndum.is og skráð sína sundmetra, allir skráðir sundmetrar safnast þar saman og verða sýnilegir á forsíðunni. Á síðunni verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.

Hvetjum alla til að fara í sund og vera með í átakinu.

Syndum saman í kringum Ísland 😊