Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa á vormánuðum eftir að mennta- og menningarmálaráðuneytið setti lög um starfið síðastliðið haust. 

Markmiðið með starfsemi Samskiptaráðgjafa er að stuðla að því að íþrótta- og æskulýðsstarf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.

Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegt- og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Einnig mun samskiptaráðgjafi koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu í þessum málaflokkum.

Starfi samskiptaráðgjafa sinnir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir sem er klínískur sálfræðingur með aðsetur í húsnæði Domus Mentis- Geðheilsustöðvar. Hægt er að hafa beint samband við hana og er hún með símatíma alla þriðjudaga kl. 10-11, í síma 839-9100. Utan þess tíma er hægt að hringja í símanúmerið en ekki alltaf öruggt að ná samtali. Einnig er hægt að senda tölvupóst á sigurbjorg@dmg.is sem verður svarað eins fljótt og hægt er. 

Eftir samtal eða fyrstu samskipti við samskiptaráðgjafa er boðið upp á viðtal ef málið varðar áreitni, ofbeldi eða einelti. Þá er frekari upplýsinga aflað og í kjölfarið eru næstu skref ákveðin, ávallt í samráði við þann sem leitar til samskiptaráðgjafa. Einnig er hægt að leita eftir ráðgjöf hjá samskiptaráðgjafa, ekki þarf að fara lengra með mál ef viðkomandi kýs það ekki. 

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem getur aðstoðað og leiðbeint einstaklingum sem telja sig hafa verið beittir ofbeldi eða misrétti í íþrótta- eða æskulýðsstarfi. Þjónusta samskiptaráðgjafa er gjaldfrjáls.

Heimasíða samskiptaráðgjafa er https://www.samskiptaradgjafi.is/ og mun hún þjóna sem upplýsinga- og fræðslusíða starfsins. Hægt er að setja sig í samband við samskiptaráðgjafa í gegnum síðuna, tilkynna atvik og fá ráðgjöf eða aðrar upplýsingar.

ÍBA ítrekar jafnframt stefnur sínar í jafnréttis, fræðslu- og forvarnarmálum sem tekur afdráttarlausa afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi, áreitni og vímuefnanotkun og má finna á heimasíðu ÍBA undir köflunum Fyrirmyndarhérað ÍSÍ og Siðareglur og hegðunarviðmið ÍBA.

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs