Samherji og atNorth styðja við stofnun ferðasjóðs fyrir börn í íþróttum á Eyjafjarðarsvæðinu

Á myndinni eru þau Heimir Örn Árnason, stjórnarmaður hjá ÍSÍ, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri…
Á myndinni eru þau Heimir Örn Árnason, stjórnarmaður hjá ÍSÍ, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja og Jóna Jónsdóttir, formaður ÍBA

Samherji og atNorth styðja við stofnun ferðasjóðs fyrir börn í íþróttum á Eyjafjarðarsvæðinu

Samherji og atNorth styðja við stofnun nýs ferðasjóðs til að auðvelda börnum á Eyjafjarðarsvæðinu þátttöku í íþróttastarfi óháð efnahag og búsetu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttabandalag Akureyrar og svæðisfulltrúa ÍSÍ og UMFÍ á Norðurlandi eystra.

Ferðasjóðurinn mun styðja við fjölskyldur til að standa straum af ferðakostnaði sem fylgir þátttöku í íþróttamótum og æfingum og stuðla þannig að auknum og jöfnum tækifærum barna til íþróttaiðkunar.

Stofnframlag sjóðsins verður í formi tíu milljóna króna styrks frá Samherja og atNorth, sem er stærsta gagnaversfyrirtæki landsins. Styrkurinn var afhentur á Akureyri í gær þegar Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, Heimir Örn Árnason, stjórnarmaður í Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Jóna Jónsdóttir, formaður Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA), gengu frá samkomulagi um stofnun ferðasjóðsins.

Mikilvægt framfaraskref fyrir börn og unglinga í Eyjafirði
Heimir Örn Árnason, segir stofnun sjóðsins mikilvægt framfaraskref fyrir börn og unglinga á Eyjafjarðarsvæðinu.

„Það er afar mikilvægt að stofna slíkan sjóð sem gefur enn fleiri börnum og unglingum möguleika á að mæta á mót og taka þannig fullan þátt í íþróttastarfinu,“ segir Heimir Örn.

Unnið er að gerð úthlutunar- og verklagsreglna fyrir hinn nýstofnaða ferðasjóð. Stefnt er að því að honum verði formlega hleypt af stokkunum í haust og að úthlutun geti hafist samtímis. Verður það kynnt betur um leið og eiginleg starfsemi sjóðsins hefst.

Samfélagið þarf að standa vörð um íþróttastarf barna
Forsvarsmenn Samherja og atNorth segja mikilvægt að samfélagið standi vörð um og styðji við íþróttastarf barna.

„Foreldrar barna í Eyjafirði eiga ekki að þurfa að hætta við þátttöku í mótum eða leikjum vegna fjarlægðar og kostnaðar. Með stofnun sjóðsins viljum við stuðla að því börn í Eyjafirði eigi þess kost að mæta á mót og keppa í sinni íþrótt,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf. Þetta tekur Eyjólfur Magnús Kristinsson forstjóri atNorth undir og segir: „Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að sem flest börn geti tekið þátt í íþróttum og notið þeirra tækifæra sem íþróttastarf skapar. Við vonum jafnframt að fleiri fyrirtæki sjái sér fært að styðja við þetta mikilvæga samfélagslega verkefni,“