Ráðstefnan "Vinnum gullið" - 20. nóvember á Grand hótel Reykjavík

Dagskrá ráðstefnunnar
Dagskrá ráðstefnunnar "Vinnum gullið"

Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga, boðar til ráðstefnunnar Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn 20. nóvember kl. 9-16 í Gullteig á Grand Hótel Reykjavík og í streymi. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk.

Dagskrá hefst með ávarpi forseta Íslands, forsætisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Að lokinni umfjöllun um framtíðarsýn mun þjóðþekkt afreksíþróttafólk greina frá sinni afstöðu. Fjallað verður um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Loks verður farið yfir hvernig hámarka megi árangur og m.a. horft út fyrir landsteinana í þeim tilgangi.

Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Skráningarfrestur er til og með 16. nóvember. Skráning hér 

Nánar á heimasíðu ÍSÍ