Opnar æfingar fyrir börn og fullorðna með sérþarfir 16. - 17. mars 2024 í Íþróttahöllinni á Akureyri

Dagana 16. og 17. mars verða opnar æfingar í Íþróttahöllinni á Akureyri bæði í fótbolta og körfubolta fyrir börn og fullorðna með sérþarfir. Þjálfarar frá bæði  KA og Þór hafa komið að þessari skipulagningu með þeim Báru hjá Haukum sem sér um körfuboltann og Gunnhildi Yrsu hjá Stjörnunni/Öspinni sem sér um fótboltann og munu þeir aðstoða á æfingunum.

Einnig verður mót í Íþróttahöllinni þessa sömu helgi, Íslandsleikarnir, þar sem börn með sérþarfir koma frá höfuðborgarsvæðinu í keppnisferð með liðum sínum hjá Haukum og Stjörnunni/Öspinni. 

Hvetjum sem allra flesta til að mæta á æfingarnar og hafa gaman.