Nökkvi Þeyr og Hafdís eru íþróttafólk Akureyrar 2022

Íþróttafólk Akureyrar árið 2022
Íþróttafólk Akureyrar árið 2022

Knattspyrnumaðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson úr KA er íþróttakarl Akureyrar árið 2022 og hjólreiðakonan Hafdís Sigurðardóttir úr HFA er íþróttakona Akureyrar 2022. Í öðru sæti voru þau Baldvin Þór Magnússon frjálsíþróttamaður úr UFA og Aldís Kara Bergsdóttir listhlaupkona úr SA. Í þriðja sæti voru þau Óðinn Þór Ríkharðsson handboltamaður úr KA og Rut Jónsdóttir handboltakona úr KA/Þór.

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2022 var lýst á verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi í kvöld 24.janúar. 

Alls bárust 27 tilnefningar frá 9 aðildarfélögum ÍBA til íþróttakarls og íþróttakonu Akureyrar árið 2022, 15 íþróttakonur og 12 íþróttakarlar. Úr þeim tilnefningum var svo kosið á milli 10 karla og 10 kvenna sem stjórn Afrekssjóðs hafði stillt upp. 

Á athöfninni veitti fræðslu- og lýðheilsuráð Akureyrarbæjar viðurkenningar til 13 aðildarfélaga ÍBA vegna 215 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 10 afreksefnum styrki. Samtals hlutu 20 einstaklingar afreksstyrki fyrir samtals rúmar 5 milljónir á athöfninni í kvöld/gær.

Nökkvi Þeyr er íþróttakarl Akureyrar í fyrsta sinn. Nökkvi Þeyr er uppalinn knattspyrnumaður hjá Dalvík. Árið 2022 skoraði hann hvorki meira né minna en 17 mörk í 20 leikjum fyrir KA í deild þeirra bestu sem og nokkur mörk í bikarkeppninni. Hann endaði sem markahæsti leikmaður deildarinnar þrátt fyrir að missa af síðustu 7 leikjum tímabilsins eftir að draumur hans um atvinnumennsku rættist er hann gekk til liðs við KV Beerschot í Belgíu í byrjun september. Í lok tímabilsins var hann valinn í lið ársins þar sem hann var markahæsti leikmaðurinn, besti sóknarmaðurinn og að lokum var hann einnig valinn besti leikmaður deildarinnar bæði af sérfræðingum sem og leikmönnum/þjálfurum deildarinnar. Með framgöngu sinni vann Nökkvi Þeyr sér inn sæti í A landsliði karla í knattspyrnu á árinu 2022 og spilaði hann sinn fyrsta A landsleik núna í janúar 2023. Þá var Nökkvi Þeyr einnig valinn Íþróttakarl KA árið 2022. 

Hafdís Sigurðardóttir er ein fremsta hjólreiðakona Íslands í dag. Hún átti sitt besta keppnistímabil árið 2022 og stóð uppi sem tvöfaldur Íslandsmeistari og bikarmeistari, bæði í götuhjólreiðum og tímatöku í A flokki kvenna. Hafdís var valin til að keppa fyrir Íslands hönd á EM í Þýskalandi,  bæði í götuhjólreiðum og tímatöku. Þar lagði Hafdís sig alla fram og var með frábæran tíma í tímatökunni og hjólaði síðan tæpa 90 km í  í hrikalega erfiðri og hraðri keppni götuhjólreiða. Hafdís er farin að reyna fyrir sér í öðrum greinum og keppti hún á Íslandsmótinu í criterium og lenti þar í öðru sæti. Þá keppti hún einnig á Íslandsmótinu í cyclocross og lenti þar í þriðja sæti. Hafdís fór til Svíþjóðar í júlí og keppti þar í Postnord U6 og endaði þar í fjórða sæti. Hún var í lok tímabilsins valin hjólreiðakona Íslands hjá HRÍ og hjólreiðakona HFA fyrir keppnisárið 2022.

Á athöfninni voru afhentar fjórar heiðursviðurkenningar frá fræðslu- og lýðheilsuráði Akureyrar fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á Akureyri.
Þau sem hlutu þær voru:

  • Páll Jóhannesson Þór
  • Herbert Bárður Jónsson
  • Þormóður Einarsson
  • Sigríður Jóhannesdóttir KA

 Þetta er í 44. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er kjörinn en það var fyrst gert árið 1979. Alls hafa nú 28 einstaklingar hlotið þetta sæmdarheiti, oftast allra júdókappinn Vernharð Þorleifsson, sjö sinnum alls.

Íþróttamenn Akureyrar 1979-2022:

1979   Gunnar Gíslason, handknattleikur og knattspyrna
1980   Haraldur Ólafsson, lyftingar
1981   Haraldur Ólafsson, lyftingar
1982   Nanna Leifsdóttir, skíði
1983   Nanna Leifsdóttir, skíði
1984   Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1985   Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1986   Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1987   Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1988   Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1989   Þorvaldur Örlygsson, knattspyrna
1990   Valdemar Valdemarsson, skíði
1991   Rut Sverrisdóttir, sund
1992   Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1993   Vernharð Þorleifsson, júdó
1994   Vernharð Þorleifsson, júdó
1995   Vernharð Þorleifsson, júdó
1996   Vernharð Þorleifsson, júdó
1997   Ómar Halldórsson, golf
1998   Vernharð Þorleifsson, júdó
1999   Vernharð Þorleifsson, júdó
2000   Ingvar Karl Hermannsson, golf
2001   Vernharð Þorleifsson, júdó
2002   Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2003   Andreas Stelmokas, handknattleikur
2004   Rut Sigurðardóttir, Tae Kwon Do
2005   Guðlaugur Már Halldórsson, akstursíþróttir
2006   Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2007   Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2008   Rakel Hönnudóttir, fótbolti
2009   Bryndís Rún Hansen, sund
2010   Bryndís Rún Hansen, sund
2011   Bryndís Rún Hansen, sund
2012   Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna
2013   Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2014   Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2015   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016   Bryndís Rún Hansen, sund
2017   Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
2017   Stephany Mayor, knattspyrna
2018   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2018   Hulda B. Waage, kraflyftingar
2019   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2019   Aldís Kara Bergsdóttir listhlaup
2020   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2020   Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup

2021   Brynjar Ingi Bjarnason, knattspyrna

2021   Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup
2022   Nökkvi Þeyr Þórisson, knattspyrna
2022   Hafdís Sigurðardóttir, hjólreiðar