Næring og árangur í íþróttum

Næring og árangur í íþróttum
Næring og árangur í íþróttum

Fimmtudaginn 23. maí næstkomandi, kl. 17:30 í Háskólanum á Akureyri mun Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur halda fyrirlestur um næringu og árangur í íþróttum.

Í þessum fyrirlestri verður m.a farið í:

  • Hvað er heilsusamlegur lífsstíll?
  • Lykilatriði að árangri
  • Tímasetningar máltíða fyrir æfingar
  • Hlutverk orkuefnanna
  • Vökvaþörf
  • Algengar mýtur (ranghugmyndir) um heilsu, næringu og árangur í íþróttum
  • Þurfum við fæðubótarefni?

Geir Gunnar er með mastersgráðu (M.Sc.) í næringarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla. Auk þess er hann með gráðu í einkaþjálfun frá ISSA og crossfit þjálfararéttindi.
Geir Gunnar starfar sem næringarfræðingur hjá Heilsustofnun NLFÍí Hveragerði og sem ráðgjafi á sviði heilsueflingar hjá Heilsugeiranum (www.facebook/heilsugeirinn).

Fyrirlesturinn er í boði ÍBA, UMSE, ÍSÍ, HA og íþróttadeildar Akureyrarbæjar og er hann ókeypis fyrir þátttakendur. Hann er ætlaður fyrir iðkendur 13 ára og eldri ásamt þjálfurum, foreldrum og öðrum sem áhuga hafa. Vonumst til þess að sjá ykkur sem flest á þessum spennandi fræðslufyrirlestri sem nýtist okkur öllum.