Málþing ÍBA

Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar og 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, mun Íþróttabandalag Akureyrar standa fyrir málþingi 16. nóvember 2012 kl. 16.00-19.00 í Háskólanum á Akureyri, sal M102.

Umræðuefni þingsins tengjast íþróttaiðkun barna og unglinga s.s.  álag við að stunda íþróttir, samstarf íþróttafélaga, þjálfara og foreldra o.fl.

Fyrirlesarar eru:

Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, prófessor við Íþróttafræðasetur Háskóla Íslands

Sonja Sif Jóhannsdóttir, master í íþrótta- og heilsufræði

Þórdís L. Gísladóttir, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík

Ellert Örn Erlingsson, íþróttasálfræðingur og íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar.

Fyrirspurnir og umræður að loknum erindum.

Stjórnandi málþingsins er Ágúst Þór Árnason, deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri.

Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta. Þátttaka er ókeypis.

Stjórn ÍBA

iba@iba.is