Líkt og síðasta vetur standa íþróttafélögin Þór og KA fyrir sameiginlegum íþróttaæfingum í Naustaskóla fyrir börn með sérþarfir. Í sumar voru sérhannaðar fótboltaæfingar í Boganum en nú er boðið upp á körfuboltaæfingar. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir börn sem þurfa sem dæmi meiri stuðning, hentar betur að vera í minni hópum og hafa aðgengi að fleiri þjálfurum á æfingum. Allir ættu að geta tekið þátt og eru allir velkomnir.
Fyrsta æfing vetrarins verður næstkomandi sunnudag, 19. október. kl. 11:00 í Íþróttahúsi Naustaskóla.
Íþróttaæfingarnar fylgja markmiðum verkefnisins ALLIR MEÐ þar sem markmiðin eru m.a.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnum svara íþróttafulltrúar Þórs og KA í tölvupósti, linda@thorsport.is og siguroli@ka.is