Íþróttaráðstefna haldin á Akureyri 23.september

Farsæll ferill: Íþróttaferill í með- og mótbyr
Farsæll ferill: Íþróttaferill í með- og mótbyr

Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri, ÍBA og ÍSÍ halda í sameiningu Íþróttaráðstefnu í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri laugardaginn 23. september 2023.

Tilgangur íþróttaráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir þá sem að íþróttum koma á margvíslegan hátt, m.a. íþróttafólk, þjálfara og foreldra, rannsakendur, nema og fagaðila, og deila þekkingu sinni og ræða viðfangsefni líðandi stundar í íþróttum.

Þema ráðstefnunnar í ár er: Farsæll ferill: Íþróttaferill í með- og mótbyr

Íþróttamenn í dag standa frammi fyrir margvíslegum streituþáttum eins og miklu æfingaálagi, meiðslum, kröfu um góða frammistöðu, þrýstingi frá samfélagsmiðlum og efnahagslegu óöryggi. Þetta getur haft neikvæð áhrif á andlega heilsu og frammistöðu íþróttamanna. 

Á ráðstefnunni munu innlendir og erlendir sérfræðingar ræða hvernig einstaklings- og umhverfisþættir geta tengst andlegri heilsu og frammistöðu í íþróttum og hvað hægt sé að gera til að ýta enn frekar undir farsælan feril í íþróttum.

Nánari upplýsingar um fyrirlesara, dagskrá og skráningu má finna inná heimasíðu Háskólans á Akureyri Farsæll ferill: Íþróttaferill í með- og mótbyr | Háskólinn á Akureyri (unak.is)

Linkur beint inn á skráningarsíðu ráðstefnunnar: Skráning á Íþróttaráðstefnuna: „Farsæll ferill: Íþróttaferill í með- og mótbyr“ | Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (rha.is)

Hvetjum áhugasama um að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara og skrá sig strax í dag.

Akureyrarbær, HA, ÍBA og ÍSÍ