Íþróttamaður Akureyrar 2022

Brynjar Ingi og Aldís Kara sigruðu í fyrra
Brynjar Ingi og Aldís Kara sigruðu í fyrra

Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær bjóða bæjarbúum til athafnar í Hofi þriðjudaginn 24. janúar nk. kl. 17.30 þar sem lýst verður kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar.

Verður þetta í 44. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður.

 

Dagskrá hátíðar

•Hátíðin sett af formanni ÍBA

•Ávarp formanns fræðslu og lýðheilsuráðs

•Kynning á Íslandsmeisturum 2022

•Kynning á heiðursviðurkenningum fræðslu- og lýðheilsuráðs

•Styrkveiting úr Afrekssjóði Akureyrar til tíu afreksefna

•Kynning á tilnefningum tíu efstu til Íþróttamanns Akureyrar 2022

•Kjöri íþróttkarls og íþróttakonu Akureyrar 2022 lýst

 

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakonu Akureyrar 2022

Aldís Kara Bergsdóttir, SA

Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA

Anna María Alfreðsdóttir, AKUR

Hafdís Sigurðardóttir, HFA

Jóna M.Arnarsdóttir, KA

Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór

Rut Jónsdóttir, KA/Þór 

Salka Sverrisdóttir, FIMAK 

Sigþóra B. Kristjánsdóttir, UFA

Valdís K. Þorvarðardóttir, KA

 

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakarl Akureyrar 2022

Alex Cambray Orrason, KA

Alfreð Birgisson, AKUR

Baldvin Þór Magnússon, UFA

Bjarni G. Brynjólfsson, Þór

Ívar Örn Árnason, KA

Jóhann Már Leifsson, SA

Lárus Ingi Antonsson, GA

Miguel Mateo Castrillo, KA

Nökkvi Þeyr Þórisson, KA

Óðinn Ríkharðsson, KA