Íþróttaeldhugi ársins 2025

 Íþróttaeldhugi ársins 2025 

Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir tilnefningu á Íþróttaeldhuga ársins 2025 sem verður tilnendur samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins fyrir árið 2025.

Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember. Hér er linkur á vefslóðina. 

Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna  að framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina.

„Íþróttastarfið á Íslandi stendur í mikilli þakkarskuld við alla þá einstaklinga sem gefið hafa af tíma sínum til að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Með þessari viðurkenningu viljum við lyfta upp starfi sjálfboðaliðans og þakka fyrir hið óeigingjarna starf sem unnið er af fjölda fólks um land allt. Við hvetjum einstaklinga til að senda inn tilnefningar” segir Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ.

Sérstök valnefnd hefur verið skipuð en í henni sitja: Þórey Edda Elísdóttir formaður, Snorri Einarsson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir. Valnefndin mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2025. Íþróttaeldhugi ársins 2025 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.

Vert er að taka fram að fyrsti Íþróttaeldhugi ársins sem krýndur var í janúar 2023 kemur úr röðum aðildarfélags ÍBA en það var hann Haraldur Ingólfsson sem hefur unnið afar mikilvægt og óeigingjarnt starf fyrir Íþróttafélagið Þór og kvennalið Þórs/KA.

Án sjálfboðaliða væri íþróttahreyfingin líklegast ekki til í núverandi mynd. Sjálboðaliðar eru hjartað sem heldur hreyfingunni okkar gangandi enda leggja þeir mikið á sig í að efla íþróttastarfið í landinu.

Við hvetjum aðildarfélögin okkar, deildir og einstaklinga til deila þessu áfram á sínum miðlum og sem víðast.

Gerum sjálfboðaliðunum okkar hátt undir höfði og tilnefnum því án þeirra hætta hjólin að snúast í okkar mikilvægu hreyfingu.

Kannski verður þú lesandi góður næsti íþróttaeldhugi ársins, hver veit? 😊