Íþróttaeldhugi ársins 2023

Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir tilnefningu á Íþróttaeldhuga ársins 2023 sem verður tilnendur í annað sinn samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2023 þann 4.janúar 2024.

Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember (en sá dagur er jafnframt helgaður sjálfboðaliðum um allan heim ár hvert) á vefslóðinni https://isi.is/fraedsla/ithrottaeldhugi-2023/.  Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna  að framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina. 

Sérstök valnefnd hefur verið skipuð sem mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka síðan lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2023. Í nefndinni sitja Þórey Edda Elísdóttir formaður, Snorri Einarsson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir.

Íþróttaeldhugi ársins 2023 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.

Þess má einnig geta að fyrsti Íþróttaeldhugi ársins sem krýndur var í janúar á þessu ári kemur úr röðum aðildarfélags ÍBA en það var hann Haraldur Ingólfsson sem hefur unnið afar mikilvægt og óeigingjarnt starf fyrir Íþróttafélagið Þór og kvennalið Þór/KA.