Helgi Rúnar Bragason er fallinn frá

Helgi Rúnar Bragason, framkvæmdastjóri ÍBA
Helgi Rúnar Bragason, framkvæmdastjóri ÍBA

Framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar, Helgi Rúnar Bragason, er látinn aðeins 47 ára gamall eftir hetjulega baráttu við krabbamein.  Helgi Rúnar var ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra ÍBA í mars 2018 og gegndi hann stöðunni allt til hins síðasta.  Hann var í veikindaleyfi síðustu misserin eftir að hann greindist með krabbamein sumarið 2021.

Helgi Rúnar var framúrskarandi starfsmaður, skarpur, fylginn sér, sýndi starfinu mikinn áhuga og metnað og dugnaður Helga Rúnars duldist engum sem með honum starfaði.  Það sýnir sig m.a. í því að Helgi Rúnar mætti reglulega á stjórnarfundi í veikindum sínum, þrátt fyrir að þurfa að hafa mikið fyrir því.  Fyrst og fremst var Helgi Rúnar þó frábær manneskja og hans verður sárt saknað en minning hans mun ávallt lifa innan íþróttalífsins á Akureyri og víðar.

Stjórn og framkvæmdastjóri ÍBA færa eiginkonu og dóttur Helga Rúnars, þeim Hildi Ýr og Karen Lind, ásamt öðrum ættingjum og vinum sínar dýpstu samúðarkveðjur.