Helga Björg ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri ÍBA

Helga Björg Ingvadóttir
Helga Björg Ingvadóttir

Helga Björg Ingvadóttir hefur verið ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar.  Ráðningin er til komin vegna veikindaleyfis framkvæmdastjóra bandalagsins, Helga Rúnars Bragasonar.  Helga Björg kemur til starfa á næstu dögum en hún verður í hlutastarfi út janúar 2023 en kemur svo í fullt starf þann 1. febrúar.  Ráðning Helgu Bjargar er til 31. október 2023.

Helga Björg er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, auk mastersgráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

Helga Björg hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og starfaði lengst af sem sjóðsstjóri hjá verðbréfafyrirtækjum bæði í Reykjavík og á Akureyri og hefur því hlotið víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum bæði hér heima og erlendis. Nú síðast starfaði hún sem sérfræðingur hjá Gallup. 

Helga Björg hefur í gegnum tíðina verið virk í íþróttastarfinu á Akureyri. Hún spilaði handbolta lengi vel með KA og síðar KA/Þór. Hún hefur tekið virkan þátt í íþrótta- og félagsstörfum í kringum íþróttaiðkun barna sinna hjá hinum ýmsu íþróttafélögum á Akureyri og situr meðal annars í stjórn yngriflokkaráðs KA.