Hafdís Sigurðardóttir úr UFA er íþróttamaður Akureyrar 2013

Kjöri íþróttamanns Akureyrar var lýst í verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og íþróttaráðs Akureyrarbæjar í Menningarhúsinu Hofi fyrr í dag (miðvikudag). Við sama tækifæri voru afhentar heiðursviðurkenningar íþróttaráðs, ásamt styrkjum og viðurkenningum til þeirra íþróttafélaga á Akureyri sem áttu landsliðsmenn og/eða Íslandsmeistara á árinu 2013.
Hafdís Sigurðardóttir, spretthlaupari og langstökkvari úr Ungmennafélagi Akureyrar, er íþróttamaður Akureyrar 2013. Hafdís bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína hér á landi á árinu í spretthlaupum og langstökki. Hún setti þrjú glæsileg Íslandsmet og vann fjölda Íslandsmeistaratitla.
Hafdís setti sitt fyrsta Íslandsmet í flokki fullorðinna í sumar er hún tvíbætti metið í langstökki kvenna. Þá setti hún einnig Íslandsmet í 60m og 300m hlaupi í sumar. Hún er sexfaldur Íslandsmeistari kvenna í spretthlaupum og langstökki innan og utanhúss á árinu 2013. Hún sigraði í öllum hlaupum sem hún tók þátt í hér heima sumarið 2013 og er stigahæsta kona í spretthlaupum á árinu í 100m hlaupi á 11,88 sekúndum, 200m hlaupi á 23,81sekúndu og 400m hlaupi á 54,03 sekúndum.
Eftir keppnistímabilið 2013 er hún komin í Ólympíuhóp FRÍ 2016 í langstökki, 200m hlaupi og 400m hlaupi, og stefnir að þátttöku á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Hafdís keppti fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg og hlaut verðlaun í spretthlaupum, langstökki og boðhlaupum á mótinu.
Einar Kristinn Kristgeirsson úr Skíðafélagi Akureyrar varð annar í kjörinu og Ingvar Þór Jónsson frá Skautafélagi Akureyrar varð þriðji.
Hafdís, ásamt öðrum verðlaunahöfum og tilnefndum íþróttamönnum, var leyst út með gjöfum frá Ferðaskrifstofu Akureyrar, Flugfélagi Íslands, Sportveri, Bjarti-Veröld bókaforlagi og Sölku bókaforlagi.

Heiðursviðurkenningar íþróttaráðs Akureyrarbæjar
Íþróttaráð Akureyrarbæjar veitti fimm einstaklingum heiðursviðurkenningu við sama tækifæri; Bryndísi Þorvaldsdóttur, Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttur, Guðmundi Víði Gunnlaugssyni, Halldóri Magnúsi Rafnssyni og Sigurði Stefánssyni. Öll eiga þau að baki áratuga farsælt starf í þágu hinna ýmsu íþróttagreina innan íþróttahreyfingarinnar á Akureyri.
171 Íslandsmeistari, 102 landsliðsmenn
Íþróttaráð og Afrekssjóður Akureyrar veittu jafnframt þeim íþróttafélögum sem áttu Íslandsmeistara og/eða landsliðsfólk á árinu 2013 viðurkenningar og styrki. Alls eignuðust 12 íþróttafélög á Akureyri 171 Íslandsmeistara og 11 akureyrsk íþróttafélög áttu 102 landsliðsmenn á árinu. Skautafélag Akureyrar á flesta einstaklinga í báðum þessum hópum, 85 Íslandsmeistara og 36 landsliðsmenn.