Fundur 14.apríl - Afreksmanneskjan og samvinna íþróttafélaga og framhaldsskóla á Akureyri

Haldinn verður fundur, sem er bland af fyrirlestrum og vinnustofum, í Íþróttahöllinni á Akureyri (Teríunnni 2.hæð) 14.apríl næstkomandi milli klukkan 16:30 og 18:30. 
 
Áhersluhópur á þessum fundi eru kennarar, þjálfarar og forsvarsfólk félaga sem sinna starfi í kringum ungmenni á framhaldsskólaaldri á Akureyri ásamt þeim ungmennum sem stunda íþróttir og nám í framhaldsskóla. 
 
Skipulag fundar
  • "Tvöfaldur ávinningur"  Vinnuhópur sem vinnur að samvinnu framhaldsskóla og íþróttafélaga á Akureyri segir stuttlega frá vinnunni.
  • Ólafur Stefánsson. Afreksmanneskjan- Hvernig sköpum við íþrótta- og námsumhverfi sem hjálpar unglingum að tapa ekki hjartanu þótt þau tapi.
  • Umræður á borðum - hvernig sjáum við samstarf íþróttafélaga og framhaldsskóla þróast?
Við viljum hvetja íþróttafélögin okkar til þess að búa til rými fyrir þjálfara svo þeir geti sótt viðburðinn og hvetja iðkendur til að mæta. Til dæmis með því að fella niður æfingar eða finna afleysingu fyrir þjálfara ef æfingar eru skipulagðar á þessum tíma. 
 
Íþróttir og nám skipta svo sannarlega máli fyrir ungmennin okkar!
 
Skráning er á qr kóðanum í auglýsingu