Formannafundur ÍBA var haldinn í Golfskálanum að Jaðri þriðjudaginn 24. nóvember. Fundurinn er haldinn árlega fyrir formenn aðildarfélaga ÍBA og þau félög sem hafa starfandi framkvæmdastjóra. Einstaklega góð mæting var á fundinn og mættu fulltrúar frá 18 af 20 aðildarfélögum ÍBA, flestir mættu með tvo fulltrúa svo það var afar fjölmennt og gaman að sjá áhuga fundargesta á þessum fundi.
Fyrir formannafundinn var undirritaður endurnýjaður samstarfssamningur á milli Akureyrarbæjar og Íþróttabandalags Akureyrar. Markmið samningsins er að íþróttastarf á Akureyri verði áfram kraftmikið, bæjarbúum til heilla. Í því felst að skapa sem bestar aðstæður til að reka starfsemi sem tryggir bæjarbúum öflugt íþróttastarf, einkum börnum og unglingum. Samningurinn gildir til þriggja ára.
Samningurinn er að mestu leyti áþekkur síðasta samningi en þar er undirstrikað að aðildarfélög ÍBA skulu beina erindum sínum til stjórnar ÍBA sem vinnur mál og vísar svo áfram til hlutaðeigandi aðila. Einnig að framkvæmdastjóri ÍBA skuli eiga sæti í vinnuhópi Akureyrarbæjar sem mun á samningstímanum vinna að áætlun um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja innan bæjarins. Samninginn í heild sinni er hægt má nálgast hér.
Síðan var undirritaður viðauki við rekstrarsamning Akureyrarbæjar og Skautafélags Akureyrar frá árinu 2024 um rekstur Skautahallarinnar. Viðaukinn er tilkominn vegna aukins umfangs og reksturs í Skautahöllinni í kjölfar breytinga á aðstöðu í Skautahöllinni árið 2024. Viðaukann má sjá hér.
Að lokum var endurnýjaður og undirritaður rekstrarsamningur Akureyrarbæjar við Siglingaklúbbinn Nökkva sem gildir til næstu fimm ára. Samkvæmt samningnum skal Siglingaklúbburinn Nökkvi halda áfram að sjá um rekstur og umsjón félagssvæðisins, þ.m.t. aðstöðumannvirki, ásamt íþróttatengdri starfsemi. Samninginn má nálgast hér.
Jóna Jónsdóttir formaður ÍBA hóf fundinn með að ávarpa gesti fundarins og upplýsti þá um það sem hefur legið á borðum ÍBA síðan á síðasta ársþingi sem haldið var í apríl síðastliðnum. Hún ítrekaði ábyrgð okkar allra sem snýr að forvörnum og þeirri ábyrgð sem við öll berum gagnvart börnum og ungmennum í íþróttastarfinu. Þar ber meðal annars að nefna neyslu á nikotínpúðum og sýnileika þeirra. “Þó að neysla nikótíns sé persónulegt val fullorðinna einstaklinga, þá þurfum við að vera meðvituð um áhrif sýnilegrar notkunar í umhverfi barna og ungmenna. Þegar nikótíndósir eru sýnilegar á borðum í búningsklefum, á skrifstofum eða gægjast reglulega upp úr vösum þeirra sem börn og ungmenni líta upp til, þá er hætta á að það sé túlkað sem samþykki eða eðlilegur hluti af íþróttaumhverfinu” sagði Jóna meðal annars í ávarpi sínu. Hún hvatti forsvarsmenn aðildarfélaganna jafnframt til þess að gera forvarnarmyndbönd um skaðsemi nikótíns aðgengileg og sýnileg sem UMFÍ, Fræðsla & forvarnir og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins gáfu út í haust undir yfirskriftinni “Taktu stjórnina”!
Ólöglegar erlendar veðmálasíður hafa verið að ryðja sér til rúms síðustu ár hér á landi. Íþróttahreyfingin sjálf, þar á meðal ÍSÍ og UMFÍ, hafa varað sterklega við þessari þróun og lýst henni sem alvarlegri ógn. Við fengum til okkar Ingvar Sverrisson sem hefur tekið virkan þátt í umræðunni um þessi mál á undanförnum árum. Ingvar er framkvæmdastjóri Atons og jafnframt formaður ÍBR. Hann fór yfir þessi mál með gestum fundarinsmeð því að svara spurningunni sem var yfirheiti kynningar hans “Græða íþróttir á veðmálum? Eða tapa?”. Miklar umræður sköpuðust í kjölfar kynningarinnar og voru fundargestir sammála um að við bærum þarna samfélagslega ábyrgð og þyrftum að standa saman að því að berjast fyrir því að aðgerðir verði hertar í þessum málum hér á landi og fræða ungmennin okkar betur.
Svæðisfulltrúar íþróttahéraða á Norðurlanddi Eystra, þau Þóra Pétursdóttir og Jónas Friðriksson, fóru fyrir þau fjölmörgu verkefni sem liggja á þeirra borðum og hvað ber hæst þessa dagana. Þegar svæðisstöðvarnar voru settar á laggirnar árið 2024 voru helstu verkefni þeirra að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. En verkefni þeirra í dag eru nánast óteljandi og eru þau algjörlega ómissandi partur af íþróttahreyfingunni enda mætti segja að svæðið okkar í heild sinni starfaði sem eitt gott og öflugt teymi.
Framkvæmdastjóri ÍBA, Helga Björg Ingvadóttir, sem jafnframt var fundarstjóri, endaði fundinn á að fara yfir ýmis mál, þar á meðal mikilvægar dagssetningar varðandi skil á gögnum til hreyfingarinnar, fór yfir þá sjóði sem hægt er að sækja um styrki í og fór yfir mikilvæg verkefni bandalagsins.
Að fundi loknum gafst gestum kostur á að bera saman bækur og spjalla saman meðan þeir gæddu sér á gómsætu jólahlaðborði að hætti Friðjóns og félaga á Jaðri Bistró.