ÍSÍ, UMFÍ og svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna (SÍU) hafa sett af stað verkefnið Farþjálfarann. Með því geta íþróttafélög fengið til sín þjálfara í greinum sem ekki eru stundaðar á þeirra svæði.
Verkefnið er bæði fyrir félög sem vilja fá þjálfara með þekkingu á ákveðinni grein og fyrir þjálfara sem vilja bjóða upp á farþjálfun. Þjálfunin getur verið stutt námskeið, til dæmis um helgi, eða föst æfing einu sinni í viku. Þjálfari og félag ákveða það sín á milli.
Þjálfarar sem hafa áhuga skrá sig á lista yfir farþjálfara og félög sem vilja fá þjálfara til sín geta óskað eftir listanum. Einnig má hafa samband við svæðisfulltrúa, hér á svæðinu eru þau Þóra, thora@siu.is, og Jónas, jonas@siu.is.
Með Farþjálfaranum vilja ÍSÍ, UMFÍ og SÍU stuðla að því að fleiri eigi kost á fjölbreyttu íþróttastarfi, óháð því hvar á landinu þeir búa.
Nánari upplýsingar, skráning og umsóknir eru á vef Svæðisstöðva íþróttahéraða: siu.is/farþjalfarinn.
Hansína Þóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá ÍSÍ, svarar einnig spurningum á netfanginu hansina@isi.is.
Svæðisstöðvar íþróttahéraða eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ.