ÁNÆGJUVOGIN -STYRKUR ÍÞRÓTTA

ÁNÆGJUVOGIN -STYRKUR ÍÞRÓTTA

niðurstöður rannsókna og hugleiðingar um skipulagt

íþróttastarf fyrir börn og ungmenni

Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.

Fimmtudaginn 31.janúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi í Háskólanum á Akureyri í sal N 102 og hefst fundurinn klukkan 17:00.

Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.

Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.