Afrekssjóður Akureyrarbæjar 2023

Afrekssjóður Akureyrarbæjar 2023 auglýsir eftir umsóknum vegna sjóðshlúthlutunar afreksíþróttaefna og landsliðskeppnisferða fyrir árið 2023. Markmið sjóðsins er að styrkja akureyrsk afreksíþróttaefni, á sextánda aldursári eða eldri (f. 2007 og fyrr), sem skara framúr í sinni íþróttagrein innan aðildarfélaga ÍBA og talin eru með markvissri þjálfun geta skipað sér á bekk með þeim bestu á landsvísu.

Ennfremur er afreksíþróttafólk og afreksefni styrkt vegna ferðakostnaðar landsliðskeppnisferða erlendis á vegum sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), að hámarki tvær ferðir á ári. 

Reglugerð afrekssjóðs Akureyrarbæjar má finna hér:

Reglugerð Afrekssjóðs Akureyrarbæjar

Rafrænir umsóknarferlar eru inná heimasíðu ÍBA:

Íþróttabandalag Akureyrar 

Umsóknarfrestur til afreksefna er til 1. desember nk. en vegna ferðastyrkja landsliðskeppnisferða 2023 til 31. desember nk.