Aðeins um þingið
67. ársþing ÍBA fór fram í Golfskálanum Jaðri mánudaginn 27. apríl. Þingforseti var gullmerkishafi ÍBA, Ingvar Már Gíslason, sem stýrði þinginu með sinni einstöku snilli.
42 þingfulltúar frá 16 aðildarfélögum ÍBA sátu þingið af þeim 78 sem höfðu fengið boð. Einnig sátu þingið góðir gestir líkt og heiðursfélagar ÍBA þeir Haukur Valtýsson og Hermann Sigtryggsson ásamt fulltrúum frá ÍSÍ, UMFÍ og Akureyrarbæ.
Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og sköpuðust góðar og fjörugar umræður um þær í þeim þremur nefndum sem störfuðu á þinginu. Þær tillögur sem lágu fyrir voru lagabreytingartillaga, tillaga um breytingu á reglugerð Íþróttamanns Akureyrar, þakkartillaga, hvatningartillaga, tillaga um fjárhagsáætlun bandalagsins og tillaga vegna ferðakostnaðar íþróttafélaga á landsbyggðinni. Tillögurnar voru allar samþykktar.
Jóna Jónsdóttir var endurkjörin formaður ÍBA, einnig hlutu þau Jón Steindór Árnason, Sigrún Árnadóttir og María Aldís Sverrisdóttir endurkjör. Nýr inn í stjórn er Siguróli Magni Sigurðsson. Ný inn í varastjórn eru þau Íris Egilsdóttir og Finnur Friðriksson.
Heiðranir og ávörp gesta
Birna Baldursdóttir sem gekk úr stjórn ÍBA eftir fimm ára setu, var heiðruð með gullmerki bandalagsins. Birna hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir bæði Íþróttabandalag Akureyrar og aðildarfélög. Hún hefur setið í stjórn ÍBA frá árinu 2021 og gengt þar starfi varaformanns auk þess að sinna starfi formanns í eitt ár. Einnig hefur Birna starfað innan aðildarfélaga ÍBA, meðal annars í stjórn Skautafélag Akureyrar sem formaður í 3 ár og átti sæti í Fræðslu -og lýðheilsuráði Akureyrarbæjar. Birna er ekki bara frábær sjálfboðaliði heldur er hún frábær íþróttamaður, hún hefur afrekað það að vera valin í þrjú landslið, í blaki, strandblaki og íshokkí. Birna hefur verið ötull talsmaður íþrótta í gegnum árin og sinnt stjórnarhlutverki sínu vel, hún er alltaf boðin og búin að gefa vinnuframlag sitt, taka þátt og gefa ráð íþróttamálum til hagsbóta. Birna var því miður ekki stödd á þinginu til að taka á móti gullmerkinu en það var ekki eina heiðursmerkið sem hún hlaut þennan góða eftirmiðdag.
Alfreð Birgisson sem sat í stjórn bandalagsins síðastliðin tvö ár var heiðraður með silfurmerki ÍBA. Alfreð var kosinn í stjórn ÍBA á ársþingi 2024 og hefur starfað í aðalstjórn síðan þá. Hann hefur verið mjög virkur í starfinu, mætt vel á fundi og viðburði og komið með gagnlegar ábendingar. Einnig hefur hann átt stóran þátt í að efla starfsemi bogfimideildar Íþróttafélagsins Akurs þar sem iðkendum og keppendum hefur fjölgað verulega undanfarin ár. Alfreð er einn fremsti bogfimimaður landsins og er landsliðsmaður í greininni og á fjölmarga bikar- og íslandsmeistaratitla að baki.
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, var gestur þingsins og afhenti Jóni Steindóri Árnasyni starfsmerki UMFÍ. Jón Steindór kom sem varamaður inn í stjórn ÍBA árið 2021 en varð síðar aðalmaður í stjórn og hefur sinnt gjaldkerastöðu stjórnar síðastliðin fjögur ár. Hann hefur verið í stjórn GA frá 2011, fyrst sem gjaldkeri og svo varaformaður frá 2012. Jafnframt hefur hann setið í stjórn Golfsambands Íslands frá 2017. Hann situr nú í starfshópi sem vinnur að greiningu á helstu reglum sem gilda um skattaleg réttindi og skyldur þeirra aðila sem hafa með höndum íþróttastarfsemi hér á landi. Það mætti því með sanni segja að Jón Steindór sé óeigingjarn sjálfboðaliði af Guðs náð. Gullmerkishafinn okkar hún Birna hlaut einnig starfsmerki UMFÍ. En þess má geta að Birna hlaut nafnbótina matmaður UMFÍ á sambandsþinginu þeirra árið 2023.
Heimir Örn Árnason sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ ávarpaði þingið og afhenti Golfklúbbi Akureyrar endurnýjun á fyrirmyndafélagi ÍSÍ ásamt Viðari Sigurjónssyni, sérfræðingi á stjórnsýslusviði ÍSÍ, sem jafnframt var gestur þingsins. Loks var Birna heiðruð með þriðja heiðursmerki hreyfingarinnar með silfurmerki ÍSÍ.
Myndir frá þinginu koma inn á heimasíðuna á næstu dögum