ÍBA hlaut Fyrirmyndarbikar UMFÍ á 27. Unglingalandsmót UMFÍ

Jóna Finndís Jónsdóttir og Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ við afhendingu bikarsins ásamt…
Jóna Finndís Jónsdóttir og Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ við afhendingu bikarsins ásamt nokkrum keppendum frá aðildarfélögum ÍBA.

27. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Sauðárkróki síðastliðna helgi. Mótið er haldið ár hvert á nokkrum mismunandi stöðum á landinu fyrir ungmenni á aldrinum 11-18 ára. Á mótinu er lögð áhersla á samveru og gleði og að allir geti verið með, óháð getu. Mótið var haldið í fyrsta sinn árið 1992 á Dalvík en til gamans má geta þess að Jón Sævar Þórðarson, sem átti hugmyndina og hafði frumkvæði að fyrsta Unglingalandsmótinu, var einmitt staddur á Sauðárkróki þessa helgi.

Í ár tóku rúmlega þúsund krakkar þátt í mótinu, af þeim voru rúmlega 100 frá aðildarfélögum ÍBA. Rúmlega 20 íþróttagreinar voru í boði fyrir keppendur ásamt opnum viðburðum, svo nóg var í boði. Þátttkendur voru skráðir í um 6.270 greinar og er meðaltalið því 5-6 greinar á hvern þátttakanda mótsins. Veðrið var hið fínasta, þvert á spár, og allir skemmtu sér vel við frábærar aðstæður í Skagafirðinum fagra.

Í ár voru sjálfboðaliðar mótsins í kringum 400 sem komu flestir frá aðildarfélögum UMSS, eiga þeir stórt hrós skilið fyrir alla sína vinnu fyrir mótið, á meðan á mótinu stóð og eftir að því lauk.

Við slit mótsins á sunnudagskvöldinu er hefði fyrir því að veita Fyrirmyndarbikar UMFÍ en bikarinn er veittur þeim sambandsaðila UMFÍ sem hefur verið til fyrirmyndar á mótinu í háttum og gjörðum. En við hjá Íþróttabandalagi Akureyrar hlutum þennan flotta bikar að þessu sinni. Jóna Finndís Jónsdóttir, fyrirverandi formaður UFA, sem er eitt af tuttugu aðildarfélögum ÍBA, og sjálfboðaliði með meiru tók við bikarnum fyrir okkar hönd úr höndum Jóhanns Steinars Ingimundarsonar formans UMFÍ. Við erum afar stolt og hrærð yfir þessum mikla heiðri  og erum jafnframt svo stolt af okkar keppendum og iðkendum innan aðildarfélga ÍBA fyrir frábæra framkomu, háttvísi og kurteisi á meðan á mótinu stóð. En mikil gleði, samstaða og hvatning var í hópnum okkar alla helgina. Algjörlega til fyrirmyndar.

Það má með sanni segja að Unglingalandsmót UMFÍ sé það sem íþróttir standa fyrir og gefur jafnframt ungum og efnilegum krökkum í þessum breiða aldurshópi tækifæri á að prófa margar og fjölbreyttar íþróttagreinar þar sem margir uppgötva jafnvel að sú íþrótt sem þeir voru að prófa í fyrsta sinn sé íþróttin sem verður síðan þeirra aðal íþrótt í framtíðinni.

Við getum ekki beðið eftir að hitta sem flesta á Unglingalandsmótinu að ári og hvetjum alla til að taka helgina strax frá. Staðsetning mótsins liggur ekki fyrir fyrr en í haust, svo það er spennandi að vita.

Takk fyrir okkur UMFÍ, Skagafjörður, UMSS, sjálfboðaliðar og allir þeir sem komu að þessu móti með einhverjum hætti.

Áfram íþróttir!

Myndir frá mótinu munu birtast hér fljótlega