Fyrirmyndarfélög ÍSÍ

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi.
Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.

Skjöl tengd fyrirmyndarfélögum má finna HÉR
Lista yfir fyrirmyndarfélög má finna HÉR

Verkefnið Íþróttahreyfingin gerir kröfur til samfélagsins um stuðning, bæði aðgang að mannvirkjum og beinan fjárstuðning. Íþróttahreyfingin vill að litið sé á þennan stuðning sem endurgjald fyrir þjónustu sem hún veitir öllum þegnum samfélagsins. Til þess að slíkar kröfur séu trúverðugar og réttlætanlegar þarf íþróttahreyfingin að sýna það í verki að hún geri raunhæfar kröfur til sjálfrar sín hvað varðar gæði og innihald þess starfs sem hún vinnur. Þetta hefur hún gert með samþykkt stefnuyfirlýsinga um afmarkaða málaflokka, þar sem fram kemur að hvernig starfi sé stefnt. Slíkar stefnuyfirlýsingar hafa m.a. verið samþykktar um barna- og unglingastarf, menntun þjálfara og forvarnastarf. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög eða deildir sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem íþróttahreyfingin gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag eða Fyrirmyndardeild.