Björn Halldór Sveinsson var kjörinn Heiðursfélagi Þórs á dögunum og var tilkynnt um það á 111 ára afmæli félagsins sem haldið var hátíðlegt í Hamri laugardaginn 6.júní síðastliðinn.
Björn Halldór Sveinsson körfuboltamaður og sjálfboðaliði en umfram ...
Fyrsti hluti af brotum úr sögu Þórs þar sem Páll Jóhannesson hefur gluggað í sögukistuna og grafið upp alls konar fróðleik og fréttaefni leit dagsins ljós og var opinberaður á 111 ára afmælisdegi félagsins, laugardaginn 6. júní. Þar var þó ekki um fullklárað verk, en nú hefur verið bætt inn því sem þar vantaði á og bætt úr nokkrum hnökrum.
Allir með fótboltaæfingar hefjast í Boganum miðvikudaginn 3. júní klukkan 16:15. Æfingarnar verða á miðvikudögum í sumar og standa yfir til 19. ágúst.
Hvetjum öll til að kíkja og prófa en æfingarnar byggjast fyrst og fremst á samveru og hreyfingu...
Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsamband...
Samherji og atNorth styðja við stofnun ferðasjóðs fyrir börn í íþróttum á Eyjafjarðarsvæðinu
Samherji og atNorth styðja við stofnun nýs ferðasjóðs til að auðvelda börnum á Eyjafjarðarsvæðinu þátttöku í íþróttastarfi óháð efnahag og búsetu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttabandalag Akureyrar og svæðisfulltrúa ÍSÍ og UMFÍ á Norðurlandi eystra.
Endurskoðuð íþróttastefna stjórnvalda hefur nú verið kynnt. Stefnan gildir til ársins 2030 og setur fram framtíðarsýn fyrir íþróttastarf á Íslandi. Áhersla er á eflingu íþróttastarfs, jafnt aðgengi að íþróttum og öflugar forvarnir með lýðheilsu að leiðarljósi um allt land. Auk þess er lögð áhersla á heildstæða nálgun og mikilvægi samstarfs opinberra aðila og íþróttahreyfingarinnar.