Íþróttabandalag Akureyrar

Íþróttabandalag Akureyrar

Flýtilyklar

Fréttir

59. ársþing ÍBA

fimmtudagur 15.apr.10 08:31 - Lestrar 216

59. ársþing ársþing ÍBA  var haldið á Hótel Kea 14. apríl 2010.

Þröstur setti þingið, bauð þinggesti velkomna og minntist félaga íþróttahreyfingarinnar á Akureyri sem létust á liðnu starfstímabili.

  • Ávörp gesta:
    • Helga Steinunn ritari ÍSÍ flutti kveðju stjórnar ÍSÍ og fjallaði örstutt um helstu verkefni ÍSÍ.
    • Ólafur Jónsson, ÍRA flutti ávarp.
    • Þröstur Guðjónsson flutti skýrslu stjórnar ÍBA og gerði að umtalsefni ársskýrslu ÍBA sem er merkilegt plagg og geymir mikla sögu. Hann taldi mikilvægt að halda þessari útgáfu áfram svo lengi sem menn treysta sér til vegna heimildagildis hennar. Hann fór svo yfir starf stjórnarinnnar og helstu áherslumál á liðnu starfstímabili.
    • Halldór Arinbjarnarson gerði grein fyrir kjörbréfum. Kjörbréf bárust frá 17 aðildarfélögum vegna 59 þingfulltrúa.
    • Gunnar Kárason fór yfir reikninga stjórnar sem birtir eru í ársskýrslu
    • Þröstur Guðjónsson kynnti tillögur stjórnar ÍBA að lagabreytingum.
    • Björgvin Ólafsson Bílaklúbbi Akureyrar lagði fram tillögu frá Bílaklúbbnum.  
    • Gunnar Kárason kynnti fjárhagsáætlun ÍBA fyrir árið 2010

  • Engar umræður um fjárhagsáætlun. 

  • Kynntar tillögur um fulltrúa í 3ja manna laganefnd, allsherjarnefnd og fjárhagsnefnd.  
    • Tillögur samþykktar.

  • Fræðsluerindi:
    • Ársæll Arnarson, dósent í sálfræði við HA: Hafa íþróttir forvarnargildi.

Þinghlé og veitingar

  • Formaður fjárhagsnefndar, Sigríður Jóhannsdóttir, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar og lagði til að fjárhagsáætlun ÍBA yrði samþykkt. Engar athugasemdir gerðar og fjárhagsáætlun var samþykkt.
  • Formaður laganefndar, Björn Guðmundsson, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar.
  • Nefndin leggur til breytingar á tillögum. Lögin í heild borin upp og samþykkt samhljóða með áður samþykktum breytingum.
  • Formaðir allsherjarnefndar, Ásta Birgisdóttir, gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar.
  • Fulltrúar nýrra félaga, Draupnis, Karatefélags Akureyrar, Svifflugfélags Akureyrar og Kraftlyftingafélags Akureyrar kallaðir upp, Þröstur bauð þá velkomna og afhenti þeim veifu ÍBA.

 

Kosningar

  • Kosningar staðfestar skv. tillögum uppstillinganefndar.
  • Formaður: Þröstur Guðjónsson
  • Stjórn: Haukur Valtýsson, Margrét Ólafsdóttir, Magnús Gauti Gautason.
  • Varastjórn: Hörður Sigurharðarson, Áslaug Kristjánsdóttir og Ármann Ketilsson.
  • Skoðurnarmenn: Sveinn Torfi Pálsson, Guðmundur B. Guðmundsson.
  • Kosningu á ÍSÍ þing vísað til formannafundar.

Önnur mál:

  • Ásta Birgisdóttir, ræddi fyrirmyndarfélög og afreksstyrki. Viðar Sigurjónsson, hrósaði ÍBA og þingfulltrúum fyrir gott og málefnalegt þing..
  • Andrea Þorvaldsdóttir, fomaður Léttis, hún vildi sjá veifur félaganna á borðum.
  • Þingforseti lauk störfum og þakkaði fyrir sig.
 

Þröstur Guðjónsson þakkaði það traust sem honum var sýnt með endurkjöri. Hann þakkaði þingforseta, þingritara þeirra störf. Fríða Pétursdóttir og Gunnar Kárason voru kvödd með blómum og þökkum. Þröstur þakkaði gestum þingsins, Hermanni heiðursfélaga ÍBA og Helgu Steinunni og Viðari frá ÍSÍ. Hann ræddi mikilvægi formannafunda og hvatti formenn til þess að mæta vel á þá. Að því búnu sleit Þröstur 59. ársþingi ÍBA, kl. 22.


Til baka


Fréttir frá félögum

Innskráning

Norðurlandamót 19 ára og yngri í frjálsum íþróttum á Akureyri í ágúst

nordurl

UFA Fróðleikur

ufa Fyrsta ungmennafélagið sem var stofnað á Íslandi var Ungmennafélag Akureyrar í ársbyrjun 1906.
Í kjölfarið voru fleiri svipuð félög stofnuð víða um land.

Deildarval