Flýtilyklar
Fréttir
Íþróttamaður Akureyrar 2009
1. Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni
Bryndís Rún styrkti sig enn frekar á liðnu ári sem ein sterkasta sundkona landsins, þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gömul. Árið 2009 er hennar besta til þessa og hefur hún sýnt jafnar og stöðugar framfarir. Hæst á árinu bar þrjá Íslandsmeistaratitla og þá er Bryndís Rún tvöfaldur Íslandsmethafi. Hún var Íslandsmeistari í 50 m flugsundi, bæði í 25 og 50 m laug, og bætti Íslandsmetið í báðum greinum. Þá varð hún Íslandsmeistari í 100 m flugsundi í 25 m laug. Á Evrópumeistaramóti unglinga komst hún annað árið í röð í úrslit og er önnur íslenska stúlkan frá upphafi sem náð hefur að synda í úrslitum á Evrópumeistaramóti. Alls keppti hún á þremur alþjóðlegum mótum erlendis á árinu og vann þar til verðlauna. Á Aldursflokkameistaramóti Íslands varð Bryndís Rún fimmfaldur meistari. Hún er í dag handhafi 52ja Akureyrarmeta í kvenna-,stúlkna-, telpna- og meyjaflokki.
2. Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA
Rakel Hönnudóttir er fædd árið 1988. Á liðnu ári var hún fyrirliði Þórs/KA í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu. Í ársbyrjun var Rakel hálfan hálfan þriðja mánuð í láni hjá Bröndby í Danmörku. Hún leiddi Þór/KA til sigurs í Lengjubikarnum og spilaði síðan alla leiki Þórs/KA í Pepsideild kvenna síðastliðið sumar. Þar skoraði hún 23 mörk og hlaut að launum silfurskóinn í keppninni um markadrottningu Íslandsmótsins.
Rakel átti á árinu 2009 fast sæti í A-landsliðshópi kvenna og spilaði með liðinu í úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins í Finnlandi í lok ágúst. Í það heila spilaði Rakel 13 landsleiki á árinu og skoraði eitt mark í þeim. Hún var á dögunum kjörin íþróttamaður ársins 2009 hjá Íþróttafélaginu Þór.
3. Oddur Gretarsson, handknattleiksmaður í Akureyri handboltafélagi
Oddur Gretarsson, sem er uppalinn í Íþróttafélaginu Þór, hefur náð einkar glæsilegum árangri þrátt fyrir ungan aldur en hann er fæddur 1990. Á liðnu ári var Oddur valinn í 2012 landslið Íslands og keppti með því í Frakklandi. Þá spilaði hann í U-20 landsliðinu í undankeppni heimsmeistaramótsins og í úrslitakeppninni í Egyptalandi, þar sem liðið hafnaði í 13. sæti. En hæst bar á árinu stórglæsilegur árangur undir 19 ára landsliðs Íslands á heimsmeistaramótinu í Túnis þar sem liðið fékk silfurverðlaun. Oddur var algjör lykilmaður í því liði.
Oddur hefur haldið áfram að sýna miklar framfarir á þessu keppnistímabili. Til marks um það var hann valinn í lið umferða 1 – 7 í N1-deildinni. Hann er markahæsti leikmaður Akureyra í deildinni í vetur með 77 mörk í 12 leikjum.
Til baka
Fréttir frá félögum
- 10. september - Bílaklúbbur Akureyrar
- Hótel Selfoss sandspyrnan
- 10. september - Sundfélagið Óðinn Akureyri
- Dómaranámskeið
- 10. september - Knattspyrnufélag Akureyrar
- Handboltaveisla í Höllinni um helgina
- 9. september - Ungmennafélag Akureyrar
- Hausthlaup UFA
- 9. september - Bílaklúbbur Akureyrar
- Hótel Selfoss sandspyrnan
- 8. september - Fimleikafélag Akureyrar
- Lokað á Skrifstofu
- 8. september - Knattspyrnufélag Akureyrar
- Handboltafréttir / Skómarkaður
- 8. september - Bílaklúbbur Akureyrar
- Hótel Selfoss sandspyrnan - VERÐLAUNAHÓF
- 8. september - Bílaklúbbur Akureyrar
- Sýning í Odense
- 8. september - Sundfélagið Óðinn Akureyri
- Sprengimót Óðins 25.-26. september 2010
Innskráning
Leit
Á döfinni
- 11. september - Norðurlandsmótaröðin loka...
- 25. september - Am - Am liðakeppni GA & C...
- 26. september - Vinnufúsir - Mót á vegum ...
- 24. október - Golfmót sölumanna
- 30. október - Haustmót í 3.-5. þrepi í ...
